Kolbrún Halldórsdóttir (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Ég vil fyrst gera athugasemd við orð herra forseta um að ég hafi komið of seint fram með athugasemdina. Ég hef ekkert á móti því að málinu verði vísað til 2. umr., sjálfsagt að samþykkja það. En það lá ekki í orðum forseta þá hvert málinu yrði vísað. Hann bað um að athugasemdir yrðu gerðar eða andmælt ef einhver hefði við það að athuga hvert málinu yrði vísað.
Ég legg mikla áherslu á það, herra forseti, að menntmn. fái að gefa umsögn um þetta frv. sem hér um ræðir og vísa í því sambandi til þeirra umræðna sem hér urðu um málið í gær. Þetta er í eðli sínu mál sem menntmn. þarf að láta sig varða því hér er verið að breyta forsendum frv., forsendum þeirra laga sem nú eru í gildi og ég tel afar mikilvægt að hv. iðnn. verði gert það að beina ósk um umsögn til hv. menntmn. varðandi málið.