Fundur þingflokksformanna og forseta

Föstudaginn 08. desember 2000, kl. 11:05:09 (3018)

2000-12-08 11:05:09# 126. lþ. 44.93 fundur 182#B fundur þingflokksformanna og forseta# (um fundarstjórn), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 126. lþ.

[11:05]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Vegna orða hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur mun forseti verða við því og kalla þingmenn til fundar í hádegishléi. Ráð var fyrir því gert vegna þingflokksfunda að það yrði heldur í lengra lagi og hæfist um hálfeittleytið. Eigum við ekki að miða við að matarhlé hefjist 12:20? Þá gefst okkur tækifæri til fundahalda áður en þingflokksfundir hefjast. Fundi verði síðan fram haldið klukkan 13:30 eins og miðað var við. Í þessu ljósi vænti ég þess að umræðan geti hafist án frekari athugasemda.