Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég ætti sjálfsagt ekki að vera að verðleggja okkar ræður, míns og hv. þm., en ég hygg þó að ræða hv. þm. hafi ekki verið miklu dýrari en mín, hafi mín verið ódýr, en það er sjálfsagt að hafa hlutina ódýra a.m.k. öðrum þræði.
Þingmaðurinn sagði: Við skulum horfa á staðreyndir. Þingmaðurinn sagði að fólk væri að færast í ranga átt og við skulum horfa á staðreyndir. Það er ekki hægt að finna neinar tölur um það, hv. þm., að tilteknir hópar séu verr staddir nú en þeir voru þegar ríkisstjórnin tók við, Framsfl. og Sjálfstfl., 1995. (Gripið fram í.) Það er ekki hægt að sýna fram á það með tölum að hópar séu verr staddir. Menn hafa haldið því fram að sumir hópar hafi fengið meiri framgang en aðrir og eru með samanburð í því sambandi. En það er hvergi hægt að sýna fram á það að staða hópa í þjóðfélaginu hafi versnað við aðgerðir ríkisstjórnar Sjálfstfl. og Framsfl. frá 1995. ( ÖJ: Í húsnæðismálum.) Nei, ég mótmæli því, ég tel að staða þeirra hafi ekki versnað, þvert á móti.
Á hinn bóginn vitum við að húsnæðisstefna sem var rekin hér var þannig skilin eftir að sveitarfélögunum úti um land allt er að blæða út. Það hefur stórkostleg áhrif á getu þeirra sveitarfélaga til að sinna þörfum fólksins í byggðunum. Þar fóru menn rangt að og menn sitja uppi með það og sveitarfélögunum er að blæða út hvað þetta varðar.