Fjárlög 2001

Mánudaginn 11. desember 2000, kl. 12:41:30 (3156)

2000-12-11 12:41:30# 126. lþ. 45.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, EMS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 126. lþ.

[12:41]

Einar Már Sigurðarson:

Herra forseti. Nú er komið að lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2001. Því miður tekur frumvarpið ekki á þeim meginvandamálum sem til staðar eru í efnahagslífi þjóðarinnar. Það er ekki tekið nægilega mikið mark á þeim viðvörunum sem fram hafa komið í umræðum um fjárlögin. Viðskiptahallinn vex enn þá. Verðbólgan er komin í gang á ný og gengi krónunnar er veikt. Þá er ekki bættur hagur þeirra sem minnst hafa fengið úr góðærinu.

Herra forseti. Fjárlögin eru á ábyrgð stjórnarmeirihlutans. Þingmenn Samfylkingarinnar sitja hjá við lokaafgreiðsluna.