Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgrh. fyrir svörin. Eins og fram kemur í máli hans er verkið í ákveðnum tæknilegum farvegi núna. Það er líka rétt að draga það fram að innan þingmannahópsins hefur verið full samstaða um að halda þessu í eðlilegum farvegi og jafnframt vilji til að hraða þessari viðkvæmu og mikilvægu framkvæmd.
Ég vil ítreka það sem ég nefndi áðan að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir því að fram fari ítarleg athugun á því hversu hratt megi láta tæknivinnu ganga, hversu hratt framkvæmdir megi ganga fyrir sig í ljósi þess þannig að við getum setið uppi með einhvern lokapunkt á þessari miklu framkvæmd.
Ég ítreka hvatningu mína til hæstv. ráðherra um það og túlka reyndar orð hans þannig að hann muni beita sér fyrir því og ég fagna því.