Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Bara til að það komi skýrt fram af minni hálfu, þá er að sjálfsögðu mikilvægt og nauðsynlegt og sjálfsagt að halda opnum vegum og þeim leiðum sem eru mikilvægar fyrir ferðaþjónustuna um hálendið, bæði í byggð og í óbyggðum. Við verðum hins vegar að miða fyrst og fremst við það að þjónustan sé yfir sumartímann. Ég mun skoða þetta mál að sjálfsögðu í því ljósi að þetta verði sumarleið en ekki vetrarvegur. Samgöngurnar eru leystar með öðrum hætti á milli þessara landshluta eftir hinni ágætu og rómuðu Háreksstaðaleið sem við opnuðum formlega í sumar og er feiknalega mikil samgöngubót á milli landshlutanna.