Fjárhagsvandi Vesturbyggðar

Þriðjudaginn 12. desember 2000, kl. 14:05:45 (3176)

2000-12-12 14:05:45# 126. lþ. 46.1 fundur 191#B fjárhagsvandi Vesturbyggðar# (óundirbúin fsp.), GAK
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 126. lþ.

[14:05]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Samkvæmt upplýsingum fjárlaganefndarmanns kom þessi texti til fjárln. frá fulltrúum meiri hlutans og ríkisstjórninni og var ekki saminn í fjárln. Ég hef ekki enn þá fengið botn í það hvernig á að gera bráðabirgðasamkomulag meðan ekkert liggur fyrir um hvort ríkið kaupi. Þess vegna voru spurningarnar orðaðar eins og þær voru orðaðar. Liggur fyrir að menn hafi þegar gert eitthvert samkomulag um hvernig þessi kaup eiga að fara fram?