Greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi

Þriðjudaginn 12. desember 2000, kl. 18:16:35 (3234)

2000-12-12 18:16:35# 126. lþ. 46.16 fundur 232. mál: #A greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi# (álagningarstofnar) frv. 158/2000, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 126. lþ.

[18:16]

Flm. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 492.

Í lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi kemur fram að þeir aðilar sem eru eftirlitsskyldir samkvæmt lögunum skuli standa straum af kostnaði við rekstur Fjármálaeftirlitsins. Árlega skal viðskiptaráðherra gefin skýrsla um áætlaðan rekstrarkostnað næsta árs. Með hliðsjón af skýrslunni tekur ráðherra síðan ákvörðun um hvort ástæða sé til að breyta eftirlitsgjaldinu með lögum. Frv. þessa efnis er nú lagt fyrir Alþingi í fyrsta sinn.

Nefndin tekur fram að strax á næsta ári hyggst hún taka til umfjöllunar skýrslur Fjármálaeftirlitsins til viðskrh. um starfsemi þess og áætlaðan rekstrarkostnað árið 2001, þar með talin meginatriði athugasemda eftirlitsskyldra aðila við rekstraráætlun Fjármálaeftirlitsins fyrir árið 2001.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita hv. þm. Vilhjálmur Egilsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Einar K. Guðfinnsson, Lúðvík Bergvinsson, Ögmundur Jónasson, Gunnar Birgisson og Hjálmar Árnason.