Atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 11:03:10 (3246)

2000-12-13 11:03:10# 126. lþ. 47.22 fundur 347. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (fræðslusjóðir) frv. 182/2000, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.

[11:03]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Vegna þeirra athugasemda sem fram komu hjá hv. 4. þm. Reykn. vill forseti fyrir það fyrsta vekja athygli á því að 22. dagskrármálið er á dagskrá með hefðbundnum hætti en viðurkennir fúslega að 23. dagskrármálið var tekið inn með afbrigðum. Forseti vill því reyna að koma til móts við hv. þm. hvað það varðar og taka tillit til athugasemda hennar í þeim efnum og miða að því að það mál komi á dagskrá og til umræðu eftir matarhlé þannig að hv. þm. gefist þá tóm til að lesa það yfir fram að þeim tíma. En haldið verður áfram umræðu um 22. dagskrármálið sem þegar er hafin.