Atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 12:20:46 (3266)

2000-12-13 12:20:46# 126. lþ. 47.22 fundur 347. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (fræðslusjóðir) frv. 182/2000, JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.

[12:20]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör og bendi á að ætli hæstv. ráðherra að beita sér fyrir slíkri úttekt væri mikilvægt að fá uppgefið hverjir þörfnuðust helst starfsmenntunar. Mér býður svo í grun að það séu eins og ég nefndi áður að stærstum hluta konur og þeir sem á einhvern hátt búa við skerta starfsorku. Ef á að ráðast í úttekt á þessu, sé hún ekki fyrir hendi, þætti mér fengur í að það yrði kortlagt eins og ég hef nefnt.