Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Ég vil aðeins skjóta inn í viðbótarspurningu áður en hæstv. ráðherra kemur hér aftur og það varðar einmitt þetta hús í Kópavogi og lóðir sem Landspítalinn -- háskólasjúkrahús væntanlega á þar.
Nú er í 7. gr. fjárlaga heimild til þess að selja blokkina og við höfum heyrt það í fréttum að áhugi sé á því hjá stjórn spítalans að selja þær eignir sem spítalinn má vera án til þess að nýta andvirðið til annarra hluta sem eru meira áríðandi að þeirra mati. Ég held að það væri gagnlegt fyrir okkur ef hæstv. ráðherra færi aðeins yfir það með okkur hvað það er þarna á lóð fyrrverandi Kópavogshælis sem hugsanlega gæti verið til sölu og hvort það sé þá ekki örugglega Kópavogskaupstaður sem er kaupandinn.
Þarna eru áreiðanlega mjög dýrmætar lóðir. Ljóst er að það hefur ekki verið byggður upp nema hluti þeirrar lóðar sem þarna hefur verið til staðar allan tímann í eigu Ríkisspítala og er áhugavert að vita hvernig þetta lítur út og hvernig þetta blasir við ráðherranum.