Úrskurður um vega- og brúarframkvæmdir í Fljótsdal

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 15:40:51 (3307)

2000-12-13 15:40:51# 126. lþ. 48.4 fundur 315. mál: #A úrskurður um vega- og brúarframkvæmdir í Fljótsdal# fsp. (til munnl.) frá umhvrh., MF
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 126. lþ.

[15:40]

Margrét Frímannsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að vekja athygli á þessu máli. Mig langar til að beina þeirri spurningu til hæstv. umhvrh., þar sem hún nefndi sérstaklega úrskurði um umhverfismat vegna vega- og brúarframkvæmda, hvort sama áhersla hefði verið lögð á umhverfismat vegna skógræktarframkvæmda í Fljótsdal.