Innflutningur dýra

Fimmtudaginn 14. desember 2000, kl. 14:08:25 (3379)

2000-12-14 14:08:25# 126. lþ. 49.14 fundur 154. mál: #A innflutningur dýra# (rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva) frv. 175/2000, Frsm. 1. minni hluta SJóh (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 126. lþ.

[14:08]

Frsm. 1. minni hluta landbn. (Sigríður Jóhannesdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. formaður nefndarinnar boðar það hér að verið geti að hæstv. ráðherra muni skipta um skoðun á þessu máli og ef hæstv. ráðherra gerir það þá bara fagna ég því alveg sérstaklega og tel það boða betri tíð með blóm í haga.