Útlendingar

Föstudaginn 15. desember 2000, kl. 12:47:35 (3439)

2000-12-15 12:47:35# 126. lþ. 50.11 fundur 344. mál: #A útlendingar# (heildarlög) frv., JBjart (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 126. lþ.

[12:47]

Jónína Bjartmarz (andsvar):

Herra forseti. Ég vil eingöngu leiðrétta það að með umræddu frv., 284. máli að mig minnir, sem var til umræðu í hv. allshn. hafi verið ætlunin að lögleiða Dyflinnarsamninginn. Bæði ég og hv. þm. Lúðvík Bergvinsson vitum að hann verður ekki lögfestur á þann hátt heldur þarf að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um lögfestingu hans.