Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 15. desember 2000 eða síðar, ef nauðsyn krefur, enda verði það kvatt saman til fundar á ný eigi síðar en 23. janúar 2001.``
Tillagan skýrir sig sjálf.