Fundargerð 126. þingi, 126. fundi, boðaður 2001-05-16 20:00, stóð 20:00:02 til 21:58:33 gert 16 22:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

126. FUNDUR

miðvikudaginn 16. maí,

kl. 8 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og fór þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna fyrir Samfylkinguna voru í fyrstu umferð Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv., í annarri umferð Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl., en í þriðju umferð talaði Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Reykn.

Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu í fyrstu umferð Árni M. Mathiesen sjútvrh., í annarri Arnbjörg Sveinsdóttir, 2. þm. Austurl., en í þeirri þriðju Vilhjálmur Egilsson, 4. þm. Norðurl. v.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs voru í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., í annarri umferð Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., en Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Halldór Ásgrímsson utanrrh. í fyrstu umferð, í annarri Guðni Ágústson landbrh., en í þriðju umferð Ísólfur Gylfi Pálmason, 5. þm. Suðurl.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykjavíkurkjördæmis, en Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestfjarðakjördæmis, í annarri og í þriðju umferð.

[20:01]

[21:57]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 21:58.

---------------