Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 255  —  237. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um skógræktarverkefni.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvað er ráðherra kunnugt um mörg skógræktarverkefni sem unnið er að hér á landi um þessar mundir og hver eru þau?
     2.      Hvert er umfang hvers um sig?
     3.      Hvert er markmið og tilgangur hvers um sig?
     4.      Á hverra forræði eru þessi verkefni og hvernig er fjármögnun þeirra háttað?
     5.      Hver eru tengsl Skógræktar ríkisins við þessi verkefni?
     6.      Hvað líður endurskoðun laga um skógrækt og landgræðslu?


Skriflegt svar óskast.