Ferill 616. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1451 — 616. mál.
Frumvarp til laga
um erfðaefnisskrá lögreglu.
(Eftir 2. umr., 19. maí.)
1. gr.
Ríkislögreglustjóri skal halda rafræna skrá með upplýsingum um erfðaefni einstaklinga og nefnist hún erfðaefnisskrá lögreglu. Tilgangur skrárinnar er að lögregla geti nýtt hana við rannsókn sakamála og til að bera kennsl á ákveðna menn.
Ríkislögreglustjóri annast skráningu í erfðaefnisskrána og ber ábyrgð á skránni. Hann skal gæta þess að uppfyllt séu ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglna sem settar eru á grundvelli þeirra um öryggismat, öryggisráðstafanir og innra eftirlit.
2. gr.
a. kennslaskrá, með upplýsingum um erfðagerð einstaklinga sem um getur í 4. gr., og
b. sporaskrá, með upplýsingum um erfðaefni sem fundist hafa á brotavettvangi, eða á mönnum eða munum sem ætlað er að tengist broti, án þess að vitað sé frá hverjum þau stafa.
3. gr.
Þegar erfðaefnisupplýsingar hafa verið unnar úr fyrirliggjandi lífsýni skal eyða sýninu.
4. gr.
a. hlotið hafa refsidóm fyrir brot á ákvæðum X. kafla, XI. kafla, 108. gr., 164.–166. gr., 170.–171. gr., 194.–196. gr., 1. og 2. mgr. 200. gr., 201.–202. gr., 211. gr., 2. mgr. 218. gr., 1. mgr. 220. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga. Sama gildir um dóm fyrir tilraun og hlutdeild í þeim brotum;
b. sýknaðir hafa verið af ákæru um brot gegn þeim lagaákvæðum sem getið er í a-lið, þar með talin tilraunar- og hlutdeildarbrot, vegna skorts á sakhæfi, eða dæmdir hafa verið til að sæta öryggisráðstöfunum skv. VII. kafla almennra hegningarlaga fyrir sömu brot;
c. tilgreindir eru í a- og b-lið og afplána refsidóm uppkveðinn fyrir gildistöku laga þessara, sæta öryggisráðstöfunum eða hefur verið veitt reynslulausn og reynslutími er ekki liðinn.
Ekki má færa í kennslaskrá upplýsingar um önnur tilvik en greinir í 1. mgr. nema brýnar ástæður beri til og það hafi sérstaka þýðingu fyrir notagildi skrárinnar.
5. gr.
Töku blóðsýnis annast læknir, hjúkrunarfræðingur eða meinatæknir. Dómfellda er skylt að hlíta þeirri meðferð sem talin er nauðsynleg vegna töku lífsýnis.
6. gr.
7. gr.
a. eigi síðar en tveimur árum eftir andlát hins skráða,
b. eigi síðar en sex mánuðum eftir að hinn skráði hefur verið sýknaður eftir endurupptöku máls,
c. þegar ljóst er að þær eru rangar eða hafa verið skráðar án tilskilinnar heimildar.
Upplýsingar sem skráðar hafa verið í sporaskrá skal afmá:
a. þegar kennsl hafa verið borin á þann sem upplýsingarnar stafa frá,
b. við fyrningu brots sem um er að ræða.
8. gr.
a. lögreglustjórum, ríkissaksóknara, dómsmálaráðuneytinu,
b. erlendum dómstólum og erlendum dómsmálayfirvöldum þegar upplýsingar á að nota við rannsókn eða meðferð sakamáls, enda verði það talið samrýmanlegt íslensku réttarskipulagi,
c. rannsóknarstofu sem annast greiningu erfðaefnis samkvæmt þjónustusamningi við dómsmálaráðuneytið, að því marki sem nauðsynlegt er vegna rannsóknar eða meðferðar sakamáls.
Öðrum en þeim sem getur í 1. mgr. er ekki heimilt að veita aðgang að skránni, sbr. þó 2. mgr. 9. gr.
9. gr.
Persónuvernd hefur aðgang að skráðum upplýsingum og öðrum nauðsynlegum gögnum til að sinna eftirliti með erfðaefnisskrá.
Nú gerir Persónuvernd athugasemdir við starfrækslu skrárinnar og skal hún þá koma þeim og tillögum um úrbætur á framfæri við ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið. Að öðru leyti fer um heimildir Persónuverndar samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
10. gr.
11. gr.