Framhaldsfundir Alþingis

Þriðjudaginn 22. janúar 2002, kl. 13:32:21 (3404)

2002-01-22 13:32:21# 127. lþ. 57.95 fundur 262#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 127. lþ.

[13:32]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Handhafar valds forseta Íslands hafa gefið út svohljóðandi bréf:

,,Handhafar valds forseta Íslands, samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsrh., forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:

Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 22. janúar 2002 kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 17. janúar 2002.

Davíð Oddsson. Halldór Blöndal.

Guðrún Erlendsdóttir.

-------------------

Davíð Oddsson.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna og býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.