Vatnsveitur sveitarfélaga

Þriðjudaginn 22. janúar 2002, kl. 16:03:13 (3434)

2002-01-22 16:03:13# 127. lþ. 57.2 fundur 378. mál: #A vatnsveitur sveitarfélaga# (rekstrarform og arðgreiðslur) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 127. lþ.

[16:03]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég sé ekki fyrir mér að Gvendarbrunnar verði seldir eða að þetta muni leiða til einkavæðingar á vatnsveitum. Það er skylda sveitarfélaga að sjá fyrir vatni. En ég tel að ekkert óeðlilegt sé að sama gildi um heitt og kalt vatn, þ.e. að eitthvert gjald komi fyrir.