Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Hæstv. menntmrh. tilkynnti að fjárhagsstaða Ríkisútvarpsins hefði verið bætt með hækkun afnotagjalda. Það var að vísu gert seint og illa og nægir ekki til að halda uppi þeim rekstri sem nauðsynlegur er á þessu menningartæki.
Hæstv. menntmrh. lýsti því yfir að hann skipti sér ekki af einstökum liðum í dagskrá eða rekstri Ríkisútvarpsins. Það er alkunna og vita allir sem vilja vita --- sem mér dettur í hug að hv. þm. Mörður Árnason geti borið vitni um --- að ríkisstjórnin, sér í lagi hæstv. menntmrh. og forsrh., hafa sérstakan kommissar á gafli inni í Ríkisútvarpinu til þess að fylgjast með rekstri þess. Það má lesa af starfsemi Ríkisútvarpsins, t.d. hvernig það kemur til skjalanna vegna framboða til borgarstjórnar í Reykjavík.
Ríkisútvarpið og sjónvarpið eru í pólitískum herfjötrum hæstv. ríkisstjórnar. En hæstv. menntmrh. er meira en aðeins æðsti yfirmaður ríkisfjölmiðlanna. Hann er nefnilega líka æðsti yfirmaður íþróttamála í landinu. Það verður fróðlegt að fylgjast með því á vordögum, ef svo fer fram um framboðsmál í Reykjavík sem lítur út fyrir, að heyra hvernig hann svarar um málið íþróttafólki í Reykjavík.