2002-01-24 17:22:31# 127. lþ. 60.6 fundur 387. mál: #A bótaábyrgð vegna tjóns af notkun loftfars vegna hernaðaraðgerða, hryðjuverka eða áþekkra atvika# (staðfesting bráðabirgðalaga) frv. 5/2002, RG
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 127. lþ.

[17:22]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Herra forseti. Ég kem hér til að lýsa stuðningi við þetta mál af hálfu Samfylkingarinnar. Samfylkingin hefur stutt aðgerðir ríkisstjórnarinnar alveg frá upphafi, frá því að þessir hörmulegu atburðir gerðust sem kölluðu á aðgerðir til stuðnings rekstraraðilum í flugi og ég tek undir það sem hér hefur komið fram af hálfu hæstv. fjmrh. að efh.- og viðskn. skoði þetta mál vel og hvort e.t.v. þurfi að setja fram nýjar tímasetningar.