Svör um sölu ríkisjarða

Mánudaginn 28. janúar 2002, kl. 15:06:55 (3597)

2002-01-28 15:06:55# 127. lþ. 61.92 fundur 277#B svör um sölu ríkisjarða# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 127. lþ.

[15:06]

Forseti (Halldór Blöndal):

Mér er ekki kunnugt um að Alþingi hafi borist frekari svör frá hæstv. landbrh. en liggja fyrir í þingskjölum.

Í annan stað vil ég segja að af gamalli þingreynslu ætla ég að ráðherrar svari eftir bestu getu þeim fyrirspurnum sem fram koma frá einstökum þingmönnum, eins og lög mæla fyrir um og þeim ber að gera í krafti embættis síns. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að svara fyrirspurnum hv. þm. en ég tel mjög gott að sem gleggstar upplýsingar geti legið fyrir um störf ráðherra og ráðuneyta og þeirra stofnana sem undir þá heyra. Ég vænti þess að einstakir ráðherrar leggi sig fram um að svara skriflegum fyrirspurnum svo vel sem þeir geta og kostur er á.