Svör um sölu ríkisjarða

Mánudaginn 28. janúar 2002, kl. 15:18:25 (3604)

2002-01-28 15:18:25# 127. lþ. 61.92 fundur 277#B svör um sölu ríkisjarða# (aths. um störf þingsins), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 127. lþ.

[15:18]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Út af þeim orðum sem hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson beindi til mín þá hefur verið unnið að því að undirbúa svar við fyrirspurn þingmannsins. Það gafst ekki tími til þess þar sem þingstörfum lauk hér 14. des. að ljúka því þá. En það liggur í hlutarins eðli að það verður gert eins fljótt og hægt er og því svari verður útbýtt hér við fyrsta tækifæri eins og hv. þm. veit náttúrlega, 1. varaforseti Alþingis.