Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 28. janúar 2002, kl. 18:35:23 (3650)

2002-01-28 18:35:23# 127. lþ. 61.12 fundur 425. mál: #A stjórn fiskveiða# (handfæraveiðar með dagatakmörkunum) frv. 3/2002, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 127. lþ.

[18:35]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef litið svo á að það sama ætti að gilda bæði í aflamarkskerfinu og í krókaaflamarkskerfinu hvað varðar framsal eða takmarkanir við það að leigja til sín. En auðvitað er hægt að líta á það á annan hátt og ég sé ekki ástæðu til að fara lengra út í það að þessu sinni.