Ásta R. Jóhannesdóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil taka undir þá gagnrýni sem komið hefur fram og ég verð að segja að það er verið að gera lítið úr þingmannamálum með því að þrengja svona umræðuna um þau. Þetta eru alveg jafnmerkileg mál og önnur sem koma inn til umræðu í þinginu og að ætlast til þess að þau séu rædd hér hvert um sig á 20 mínútum er auðvitað bara lítilsvirðing við þau mál. Auðvitað eiga að gilda þingsköp um þessi mál eins og önnur mál.
Ég gagnrýni það og vil að það komi fram að mér finnst þetta vera óréttlæti af hálfu þingsins að þrengja umræðu um mál sem koma frá þingmönnum.