Samstarf fagstétta í heilsugæsluþjónustu

Þriðjudaginn 29. janúar 2002, kl. 15:37:53 (3708)

2002-01-29 15:37:53# 127. lþ. 62.8 fundur 55. mál: #A samstarf fagstétta í heilsugæsluþjónustu# þál., Flm. KF (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 62. fundur, 127. lþ.

[15:37]

Flm. (Katrín Fjeldsted):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um aukið samstarf fagstétta í heilsugæsluþjónustu. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þm. Jónína Bjartmarz, Bryndís Hlöðversdóttir og Þuríður Backman.

Tillögugreinin hljóðar svo:

,,Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að kanna gildi þess fyrir framgang heilbrigðisáætlunar og jafnframt hagkvæmni þess að koma á auknu samstarfi heilsugæslu við aðrar fagstéttir svo sem gert er ráð fyrir í lögum um heilbrigðisþjónustu og reglugerð fyrir heilsugæslustöðvar.``

Herra forseti. Mikilvægi heilsugæslunnar sem einnar af grunnstoðum heilbrigðisþjónustunnar í landinu er óumdeilt. Talið hefur verið að 80--85% af landsmönnum ættu að geta fengið þjónustuþörf sinni fullnægt innan heilsugæslunnar. Jafnframt því sem áhersla er lögð á að fjölga heimilislæknum þarf að huga að aðkomu skjólstæðinga að stoðþjónustu og ráðgjöf annarra fagstétta og hefur löggjafinn gert ráð fyrir að á heilsugæslustöð eða í tengslum við hana skuli veitt þjónusta af ýmsu tagi og er þjónustan talin upp í 19. gr. laganna. Lögin eru frá 1990 en einnig er í gildi reglugerð fyrir heilsugæslustöðvar. Árið 1982 er síðasta reglugerð reyndar sett. Hún er komin nokkuð til ára sinna og brýnt að ný og endurskoðuð reglugerð verði sett hið fyrsta.

Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ráðherra verði falið að kanna hagkvæmni þess að heilsugæslan auki starfstengsl sín við fleiri fagstéttir en nú er. Tillögunni er ætlað að stuðla að auknu og bættu þjónustustigi innan heilsugæslunnar þannig að hún sé betur fær um að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til hennar. Aukið samstarf við aðrar fagstéttir ætti jafnframt að létta nokkuð álagi af heimilislæknum og um leið auka afköst heilsugæslunnar í heild sinni. Þannig gæti heilsugæslan m.a. samið við félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa, sálfræðinga og fleiri stéttir um samstarf til stuðnings þeim skjólstæðingum sem heimilislæknar stöðvanna teldu að þyrftu á slíkri þjónustu að halda. Vert er í þessu sambandi að minnast á verkefnið ,,Nýja barnið``. Það var verkefni Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og kom út skýrsla á vegum landlæknisembættisins árið 2000 um það þróunarverkefni. Stöðin á Akureyri lagði áherslu á að nýta fjölskylduráðgjöf til að þróa nýja vídd í heilsuverndarstarfi, sérstaklega í mæðra- og ungbarnavernd. Verkefnið var síðan tilnefnt af heilbrigðisráðuneytinu sem framlag Íslands í samkeppni þróunarverkefna sem efnt var til í tilefni 50 ára afmælis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar 1998 og þar fékk það sérstaka viðurkenningu. Þá hefur samstarf um fyrirbyggjandi aðgerðir komist á milli heilsugæslunnar í Hafnarfirði við skólaskrifstofu og aðra faghópa og jafnframt á heilsugæslan í Grafarvogi aðild að Miðgarði þar sem rekin er fjölskylduþjónusta fyrir íbúa Grafarvogs.

Herra forseti. Á síðasta þingi var samþykkt þingsályktun um heilbrigðisáætlun til ársins 2010. Í þeirri ályktun eru sett fram metnaðarfull markmið til næstu ára. Til að þessi markmið megi nást verður heilsugæslan að geta veitt þá þjónustu sem lög um heilbrigðisþjónustu og reglugerð um starfsemi heilsugæslustöðva gera ráð fyrir. Af þessum sökum er lagt til að ráðherra kanni gildi aukins samstarfs fyrir framgang heilbrigðisáætlunar sérstaklega. Með því að efla samstarf við aðrar fagstéttir er unnt að renna styrkari stoðum undir starfsemi heilsugæslunnar í landinu.

Þingsályktunartillaga þessi var lögð fram á seinasta þingi en eigi var þá unnt að mæla fyrir henni. Er hún því lögð fram að nýju, óbreytt.