Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Mér er nokkur ánægja að vera 2. flm. að þessu máli sem hv. þm. Kristján Möller flytur ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar.
Við vitum að landsbyggðin stendur að mörgu leyti hallari fæti en þegar nær dregur höfuðborgarsvæðinu og margt veldur því. Nefna má óhagstæðar rekstrareiningar. Oft er lítil samkeppni og líka hár flutningskostnaður. Við vitum líka að óréttlátt þungaskattskerfi á stóran hlut að því að gera flutningskostnaðinn jafnháan og raun ber vitni og þar með torvelda rekstrarskilyrði fyrirtækja á landsbyggðinni.
Því má segja að þessi tillaga okkar samfylkingarþingmanna beinist með mjög einörðum hætti gegn þungaskattskerfinu. Við erum að leggja hér til að sett verði á laggir nefnd sem metur sérstaklega hvaða áhrif þungaskatturinn hefur á vöruverð og jafnframt hvaða áhrif hann hefur á rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni.
Herra forseti. Þó skiptir e.t.v. mestu máli að Samfylkingin er hér að leggja til að nefndin komi fram með tillögur sem hafi það að markmiði sínu að draga úr áhrifum þungaskattsins á vöruverð og jafna rekstrarskilyrði atvinnufyrirtækja hvað þetta varðar á milli landsvæða. Ég held að það megi fullyrða, herra forseti, að ástæðan fyrir hærra verðlagi á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu sé að verulegu eða nokkru leyti þungaskattskerfið sem við búum við. Það er þess eðlis að það kemur harðar niður á íbúum landsbyggðarinnar en íbúum höfuðborgarsvæðisins.
Eins og hv. þm. Kristján Möller rakti áðan þá er svo komið að langstærstum hluta innfluttra vara er skipað upp í Reykjavík eða í nágrannahöfnum og síðan er vörunum dreift með bifreiðum um landið allt. Þungaskattur leggst á þessa flutninga og því lengra sem ekið er með vöruna því hærri verður skatturinn. Skatturinn kemur þannig fram í hærri flutningskostnaði sem aftur birtist í því að vöruverð til viðkomandi neytenda, neytenda landsbyggðarinnar hækkar fyrir vikið.
Nauðsynlegt er að bregðast við þessu, herra forseti, og þessi tillaga okkar er um að þessi þróun verði sérstaklega könnuð, að rannsakað verði hvað áhrif breytingar á þungaskattinum hafa haft á verðlag á landsbyggðinni á undanförnum árum.
Hv. þm. Kristján L. Möller hefur verið ákafur talsmaður þess að beitt verði með einhverjum hætti aðgerðum innan skattkerfisins til þess að draga úr ójöfnuði milli landsvæða. Hv. þm. Kristján Möller hefur m.a. bent á þá leið sem Norðmenn hafa farið, en í Noregi hafa menn farið þá leið að skipta landinu niður í svæði. Þungaskattur er mishár og réttlættur út frá byggðasjónarmiðum. Ég tel, herra forseti, fyllilega réttlætanlegt og að það sé í samræmi við þau sjónarmið jöfnuðar sem Samfylkingin starfar eftir að þetta kerfi verði grandskoðað og ég held að menn ættu að íhuga að taka það upp.
Ég held að á þennan hátt væri hægt að stíga mikilvægt skref í þá átt að jafna verðlag á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins og það er eitt af því sem við í Samfylkingunni berjumst fyrir. Við höfum lagt fram fjöldamörg þingmál sem miða að því að bæta stöðu landsbyggðarinnar í samkeppninni við höfuðborgarsvæðið vegna þess að oft og tíðum veldur talsvert ranglæti því að hún stendur hallari fæti. Hér er komin fram mikilvæg tilaga sem við teljum að geti skipt miklu máli. Því legg ég til, herra forseti, að hið háa Alþingi fari mildum höndum um þessa tillögu og skyggnist grannt eftir því hvort ekki sé rétt að samþykkja hana óbreytta.