Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir skýr svör. Jafnvel þó að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við þá tímafresti sem hún gaf út í upphafi, þá er alveg ljóst samkvæmt yfirlýsingu forsrh. nú að lækkanirnar munu koma til framkvæmda. Þær verða tilkynntar á morgun.
Ég er að vísu þeirrar skoðunar að áhrifin af hækkunum á opinberri þjónustu af ríkisins hálfu hafi numið hærra hlutfalli en því sem hæstv. forsrh. sagði hérna áðan en hann nefndi til sögunnar Reykjavíkurlistann.
Herra forseti. Reykjavíkurlistinn lét reikna út hver voru áhrif hækkunar á gjaldskrá Reykjavíkurborgar. Það var tekið til baka. Ég sætti mig fullkomlega við sömu vinnuaðferðir af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ég fagna því auðvitað ef hæstv. forsrh. ætlar að fylgja fordæmi borgarstjórans í Reykjavík.