Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Hæstv. samgrh. kom áðan með stórmerka stjórnmálakenningu, að Ríkisendurskoðun eigi ekki að koma nálægt neinu sem lúti að pólitískri vinnu. Þá er ekkert annað eftir en að leggja Ríkisendurskoðun niður því að Ríkisendurskoðun hefur það hlutverk að fara yfir fjárhagsleg málefni hins opinbera, framkvæma þar eftirlit og veita þar aðhald. Yfirgnæfandi meiri hluti allra slíkra útgjalda heyrir undir pólitíska ráðherra og mundi því vera úr leik samkvæmt röksemdafærslu samgrh.
Einkavæðingarnefnd fer með mikla opinbera fjármuni, hefur í höndunum ákvörðunarvald um hvernig gríðarlega verðmætum eignum hins opinbera er ráðstafað. Einkavæðingarnefnd er væntanlega það sem heitir samkvæmt lögum ,,stjórnskipuð nefnd``, eða hvað? Hvaða stöðu hefur hún í stjórnkerfinu?
Þessa þætti og allt sem störfum hennar tengist getur og á Ríkisendurskoðun að athuga eftir því sem tilefni eru til. Þetta liggur algjörlega á borðinu og hæstv. samgrh. verður að fara heim og lesa sér betur til um skipan mála í hinu opinbera kerfi og hlutverk Ríkisendurskoðunar samkvæmt lögum áður en hann tjáir sig frekar um þá hluti hér í ræðustólnum. Það er bersýnilega nauðsynlegt.
Ríkisendurskoðun getur bæði framkvæmt fjárhagslegar úttektir og stjórnsýslulegar, getur gert svokallaða ,,stjórnsýsluúttekt``. Og skyldi ekki vera full þörf á að gera hana þegar einkavæðingarnefndin og allt hennar vafstur á í hlut?
Að lokum má spyrja að því, herra forseti: Veldur það óróleika ráðherrans að þarna sé eitthvað á ferðinni sem ekki þoli dagsins ljós, sem ráðherranum sé illa við að Ríkisendurskoðun athugi? Vill ekki ráðherrann, ef hann trúir á málstað sinn, láta Ríkisendurskoðun hreinsa sig? Hvað veldur þessu upphlaupi ráðherrans hér yfir því sem er alveg samkvæmt venju, að þingflokkur beinir erindi til Ríkisendurskoðunar í gegnum forsn.?