Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Maður hefði búist við að ríkisstjórnin hefði skýrari svör við því hvernig hún ætli að standa að málum og samskiptum við Alþingi í kjölfar þeirra ákvarðana sem hún hefur tekið um að leggja til breytingar á yfirstandandi fjárlögum og leysa vanda þeirra stofnana sem missa tekjur vegna þessara breyttu áherslna. Það er í sjálfu sér huggun harmi gegn fyrir Ríkisútvarpið að ríkisstjórnin heiti því að að þessu leyti verði það jafnsett og ella hefði orðið. En ég minni á að þrátt fyrir þessa áformuðu hækkun afnotagjalda blasti við að Ríkisútvarpið er í hengjandi vandræðum eins og fram kemur m.a. í þessum samskiptum Ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar því að frá því á miðju ári 2000 hefur Ríkisútvarpið ekki borgað krónu til Sinfóníunnar af þeim framlögum sem því ber að gera samkvæmt núgildandi lögum eftir að Menningarsjóður útvarpsstöðva var lagður niður. Þessi samskipti Sinfóníuhljómsveitarinnar og Ríkisútvarpsins eru ekki bara skipulagsmál, herra forseti. Peningar eru peningar hvað sem skipulaginu líður. Staðreyndin er sú að báðar þessar mikilvægu menningarstofnanir, tvær af þremur fjórum stærstu og mikilvægustu menningarstofnunum landsins, eru reknar á yfirdrætti. það virðist vera sérstök stefna ríkisstjórnarinnar og menntmrh. Björns Bjarnasonar að reka æðstu menningarstofnanir þjóðarinnar á yfirdrætti, á fitti. Maður veltir því fyrir sér hvort einhver stífla sé í pípunum á milli fjmrn. og menntmrn. því það er varla einleikið hversu erfiðlega búskapurinn hjá þessum menningarstofnunum gengur. Þessi samskipti fjmrn. og menntmrn. eru eitthvað hnökrótt að þessu leyti.
Ég ítreka svo spurningu mína: Er þess að vænta að fjáraukalagafrv. verði flutt á næstu dögum? Það er að mínu mati algjörlega óboðlegt ef ríkisstjórnin ætlar að geyma þetta allt saman til haustsins. Það eru þegar gjörbreyttar forsendur og það ber að leggja nú fram fjáraukalagafrv.