Áhugamannahnefaleikar

Mánudaginn 04. febrúar 2002, kl. 16:59:04 (3934)

2002-02-04 16:59:04# 127. lþ. 68.10 fundur 39. mál: #A áhugamannahnefaleikar# frv. 9/2002, GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 127. lþ.

[16:59]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka síðasta hv. ræðumanni Hjálmari Árnasyni fyrir ágæt orð í minn garð. Ég segi nú ekki að ég hafi legið undir feldi ómælda mánuði eins og ónefndur ráðherra við allt annað tilefni.

En varðandi það að mæta og skoða þennan búnað þá held ég að ég láti nú þau orð standa sem ég hef sagt hér. Ég þekkist ekki boðið en þakka samt gott boð. Svo eru bara áhöld um og vonandi að það fari sem við viljum hvað áhrærir afgreiðslu þessa máls.