Þuríður Backman:
Herra forseti. Við ljúkum nú vonandi hér umræðu um till. til þál. um átraskanir, sem hv. þm. Katrín Fjeldsted er 1. flm. að. Ég ásamt fjölda annarra þingmanna er meðflutningsmaður þessarar tillögu.
Herra forseti. Ég vil lýsa sérstökum stuðningi við tillöguna því við höfum að undanförnu heyrt af áhyggjum landlæknisembættisins og margra fagaðila af þyngdaraukningu þjóðarinnar, sérstaklega barna og unglinga. Það á ekki bara við um Ísland heldur hinn vestræna heim að offita er orðið vandamál hjá allt of mörgum. En þessi tillaga tekur enn frekar á því sem við köllum lystarstol, lotugræðgi og átraskanir sem valda því að fólk er óhóflega grannt eða horað.
Herra forseti. Því miður verða aðallega ungar stúlkur fyrir þessum átröskunum sem eru sjúklegar. Þessum sjúkdómi má líkja við óhreinu börnin hennar Evu. Þetta er falinn sjúkdómur og einna lengst oft og tíðum fyrir þeim sem eru haldnir þessum sjúkdómi. Sjálfsmyndin er brengluð og keppst er við að halda engum holdum en viðkomandi finnist hann velta um í spiki.
Orsakir átraskana eru margvíslegar og mjög flóknar, svo flóknar að sérfræðiþekkingu þarf til þess að ráðleggja þeim sem fá þennan sjúkdóm. Eins er öll meðferð erfið og flókin og oft tímafrek. Það er því ekki á valdi hvers og eins, þó læknismenntaður sé eða hafi aðra heilbrigðismenntun, að leiðbeina í þessum málum. Því væri mjög áhugavert og þarft að koma upp þverfaglegri þjónustu þeirra sem hafa sérþekkingu á átröskunum og að þessi þjónusta verði aðgengileg öllum.
Herra forseti. Mig langar til þess að nefna að tíska og tískuheimurinn er mjög mikill áhrifavaldur hvað varðar sjálfsímynd þessara ungu stúlkna og í raun er ábyrgð tískuheimsins mikil eða tískukónganna sem svo eru kallaðir, þeirra sem hafa áhrif á útlit sýningarstúlknanna, því stúlkurnar sem slíkar eru hluti af þeirri ímynd sem þeir sýna í tískuheiminum. Oftar en ekki er þessi ímynd hvati þess að stúlkur byrji að reykja til þess að halda ekki holdum. Því er ekki aðeins um að ræða lystarstolið og átraskanirnar heldur er þessi ófagra ímynd líka hvati að mjög óhollu líferni, t.d. reykingum.