Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla einmitt að tala um fólkið. Hv. þm. Halldór Blöndal virðist nokkuð viss í sinni sök. Það erum við líka. Við erum að fjalla um mikið álita- og deilumál. Við höfum sýnt fram á að Kárahnjúkavirkjun og stóriðjuáform og virkjunaráform stjórnvalda munu valda miklum náttúruspjöllum. Um það deilir reyndar enginn.
Við höfum bent á að það séu miklar líkur fyrir því að þetta sé efnahagslegt glapræði, og þá er einmitt komið að fólkinu. (Gripið fram í: Gott að heyra.) Við erum að ræða tillögu sem gengur út á það að málinu verði skotið til úrskurðar fólksins, þjóðarinnar. Og nú vil ég heyra á hvern hátt hv. þm. Halldór Blöndal réttlætir andstöðu sína við það að þjóðin fái að skera úr um þetta mikla deilumál í þjóðaratkvæðagreiðslu.