Mörður Árnason:
Virðulegi forseti. Þetta eru merkileg svör vegna þess að þau benda aftur og aftur til þess að líffræðingar og fiskifræðingar viti ekki hvaða áhrif hér er í raun verið að ræða um. Það er mikilvægt til þess að verja þann íslenska málstað sem við höfum í frammi um rétt okkar og annarra þjóða til að nytja alla stofna í samráði við aðrar þjóðir --- þegar um er að ræða hvalastofna sem ekki tilheyra einu landi, eða aðra stofna --- að byggja á mjög traustum og fræðilegum rökum. Frá upphafi þessarar deilu hafa menn verið að reyna að gera það hér á Íslandi, að byggja á fræðilegum rökum gegn þeim ímyndarmálum um táknfræði sem að öðru leyti liggja fyrir.
Við spyrjum um það, og hv. fyrirspyrjandi spyr, hvað hvalir éta mikið. En það er aldrei spurt hvað sjófugl étur mikið. Það bendir til þess að raunverulegur áhugi á áti fiska í sjó nái ekki fram yfir þessa hvalabaráttu og nái í raun og veru ekki fram yfir þann popúlíska bjánahátt sem fyrirspurn af þessu tagi lýsir, og svarið við henni einnig.