Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. heilbrrh. um bólusetningu gegn barnasjúkdómum. Tilefni þessarar fyrirspurnar er að í langan tíma hefur verið mikil umræða í Bretlandi um að aukningu á einhverfu megi hugsanlega rekja til fyrirkomulags á bólusetningu gegn barnasjúkdómum. Um það eru þó mjög skiptar skoðanir í heilbrigðisstéttum, ekki síst meðal lækna, og yfirvöld hafa ekki viljað fallast á að fyrirkomulag bólusetningar sé varasamt. Harkalega hefur engu að síður verið tekist á um þetta í fjölmiðlum í Bretlandi á undanförnum mánuðum og missirum.
Bólusetningu er þannig háttað í Bretlandi, eins og hér á landi, að börn fá í einni og sömu sprautunni bólusetningu gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum. Talið er að það tíðkist meðal efnameira fólks í Bretlandi að það láti gefa börnum sínum þessi bóluefni í þrennu lagi, þ.e. í þremur mismunandi sprautum af ótta við hugsanlegar afleiðingar, en bæði rætt um einhverfu og þarmasjukdóma í því sambandi. Mikil fjölgun hefur orðið á einhverfutilvikum í Bretlandi og um það stendur deilan hvort að hluta til megi rekja þessa fjölgun til fyrirkomulags bólusetningarinnar. Tony Blair forsætisráðherra hefur t.d. ítrekað verið dreginn inn í umræðuna, en hann vill ekki svara því hvort eða þá hvernig sonur hans hafi fengið slíka bólusetningu, þ.e. hvort það hafi verið í einni sprautu eða þremur sprautum gegn þessum barnasjúkdómum.
Í ljósi þessa er m.a. fyrirspurn mín borin fram, til að reyna að varpa ljósi á það hvernig þessum málum er háttað á Íslandi. Ég hef orðið vör við nokkra umræðu og ótta meðal ungs barnafólks um það hvernig þessu sé farið hér á landi. Þessi fyrirspurn er sett fram til að taka af allan vafa um að íslenska heilbrigðiskerfið hér á landi hafi verið á varðbergi og hvort skoðað hafi verið hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi bólusetningar við þessum barnasjúkdómum.
Ég hef því beint þremur fyrirspurnum til ráðherra sem lúta að því hvort farið hafi fram umræða eða rannsókn í heilbrigðiskerfinu hér á landi með hliðsjón af þeirri umræðu sem hefur verið t.d. í Bretlandi, eins og ég hef hér greint frá, og hvort ástæða sé til þess að ætla að varasamt sé að hafa bólusetningu gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu og hvort slíkt fyrirkomulag bólusetningar geti verið orsök fleiri dæma um einhverfu á liðnum árum. Og ekki síst spyr ég um hvort á döfinni sé að breyta fyrirkomulagi á þessum málum, sérstaklega hvort fólk geti valið að fá bólusetningu við hverjum þessara sjúkdóma sérstaklega.