Getraunir

Fimmtudaginn 07. febrúar 2002, kl. 13:50:39 (4249)

2002-02-07 13:50:39# 127. lþ. 73.6 fundur 314. mál: #A getraunir# (reikningsár) frv., Frsm. ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 127. lþ.

[13:50]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Þetta er ósköp skýrt og einfalt mál. Ég mæli fyrir nál. frá allshn. um frv. til laga um breyting á lögum um getraunir.

Við í nefndinni fjölluðum um málið og fengum á fund okkar Dís Sigurgeirsdóttur.

Það er lagt til að reikningsár Íslenskra getrauna verði almanaksárið og þannig fært til samræmis við reikningsár þeirra aðila sem að félaginu standa og þeirra erlendu getraunafyrirtækja sem félagið er í samvinnu við. Við mælum því með því að frv. verði samþykkt óbreytt.