Áhugamannahnefaleikar

Fimmtudaginn 07. febrúar 2002, kl. 14:02:03 (4253)

2002-02-07 14:02:03# 127. lþ. 73.7 fundur 39. mál: #A áhugamannahnefaleikar# frv. 9/2002, GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 127. lþ.

[14:02]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Herra forseti. Jú, hvar tveggja manna tal fer fram er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Það var hins vegar mjög athyglisvert að hlusta á hv. þm. tala um að þetta gerðist í öllum flokkum og ekki síst í Sjálfstfl. Ég bara næ engu samhengi í þetta. Kemur mér þá til hugar konan sem átti tvíburana, Stebba og Jón, og þeir voru svo rosalega líkir, sérstaklega Jón.