Yfirlýsing frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs

Fimmtudaginn 07. febrúar 2002, kl. 15:25:45 (4270)

2002-02-07 15:25:45# 127. lþ. 73.93 fundur 321#B yfirlýsing frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs# (um fundarstjórn), SJS
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 127. lþ.

[15:25]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta þann misskilning að þessi yfirlýsing hafi verið lesin af okkar hálfu, þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, í því skyni sérstaklega að ræða hana. Þar sem yfirlýsingin og efni hennar varðar hins vegar störf þingsins og samskipti okkar við forseta Alþingis töldum við rétt að hún yrði lesin hér áður en hún yrði send fjölmiðlum. Að öðru leyti er þetta yfirlýsing, samþykkt sem þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs hefur gengið frá á fundi, og hún er hér eingöngu til kynningar þingmönnum af okkar hálfu.