Afnám gjalds á menn utan trúfélaga

Fimmtudaginn 07. febrúar 2002, kl. 18:30:05 (4318)

2002-02-07 18:30:05# 127. lþ. 73.18 fundur 417. mál: #A afnám gjalds á menn utan trúfélaga# frv., ÁMöl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 127. lþ.

[18:30]

Ásta Möller (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. hefur kallað eftir efnislegri umræðu um þetta mál. (MÁ: Til hennar hefur ekki komið.) Henni hefur verið haldið á lofti. Efnislegri umræðu hefur verið haldið á lofti.

Hv. þm. sakaði mig um orðhengilshátt í útvarpsviðtali fyrir tæpri viku. Nú er ég í efnislegri umræðu og þá segir þingmaðurinn: Ég nenni ekki að taka þátt í þessu. Ég segi þá bara: Segjum tvö. Ég nenni því ekki heldur.