Sala Landssímans

Mánudaginn 11. febrúar 2002, kl. 15:27:28 (4334)

2002-02-11 15:27:28# 127. lþ. 74.1 fundur 324#B sala Landssímans# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 127. lþ.

[15:27]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þm. að nauðsynlegt er að ríkisstjórnin fylgist með málinu frá degi og dags og það hefur hún gert. Þetta er sameiginleg skoðun stjórnarflokkanna og margoft hefur komið fram að fyrirtækið verði ekki selt nema viðunandi verð fáist fyrir það. Eins og staðan er í dag horfir ekki til þess að viðunandi verð fáist í þessum áfanga. Það er ekki endanlega útséð en til þess horfir ekki. Það eru þær upplýsingar sem ég gaf og eru sannleikanum samkvæmar og er ríkisstjórninni fullkunnugt um það.