Samkeppnisstofnun

Mánudaginn 11. febrúar 2002, kl. 15:34:51 (4340)

2002-02-11 15:34:51# 127. lþ. 74.1 fundur 325#B Samkeppnisstofnun# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 127. lþ.

[15:34]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Hv. þm. hafði ekki leyfi til að skilja svarið með neinum öðrum hætti en þeim sem það var sagt. Ég lýsti persónulegri skoðun minni á þessu efni og hef lýst henni áður. Það mál hefur ekki verið rætt í ríkisstjórn og engin ríkisstjórnarsamþykkt verið gerð um það efni.

Ég met störf Samkeppnisstofnunar mikils. Ég tel hana mjög mikilvæga stofnun. Hún þarf engu að síður að fara að lögum eins og aðrar stofnanir og sumir segja jafnvel að stofna ætti aðra Samkeppnisstofnun til að veita hinni fyrri heilbrigða samkeppni.