Fullgilding Árósasamningsins

Mánudaginn 11. febrúar 2002, kl. 15:43:12 (4346)

2002-02-11 15:43:12# 127. lþ. 74.1 fundur 327#B fullgilding Árósasamningsins# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 127. lþ.

[15:43]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Það kom í ljós að Árósasamningurinn er umfangsmeira og flóknara mál en margir höfðu gert sér grein fyrir. Ýmsar athugasemdir hafa borist borist við hann. Hann er enn til athugunar í utanrrn. og höfum við í því sambandi samráð við aðrar Norðurlandaþjóðir um hvort og hvenær við leggjum hann fyrir að nýju. Það hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um það þannig að ég get ekki sagt meira um það á þessu stigi. Málið er til athugunar í utanrrn. og mun koma í ljós á næstu vikum hver afdrif þess verða.