Fullgilding Árósasamningsins

Mánudaginn 11. febrúar 2002, kl. 15:46:57 (4350)

2002-02-11 15:46:57# 127. lþ. 74.1 fundur 327#B fullgilding Árósasamningsins# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 127. lþ.

[15:46]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur mikla sérstöðu á Alþingi en hins vegar liggur ljóst fyrir að embættismenn utanrrn. geta hvenær sem er komið á fund hv. umhvn. og gert grein fyrir þessu máli. Hvort rétt er að kalla utanrrh. þar til skal ég ekki segja til um. Það er eðlilegra að kalla til viðkomandi ráðherra. En ég býst við að embættismenn ráðuneytisins geti alveg gert grein fyrir málinu og þeir eru að sjálfsögðu reiðubúnir til að gera það hvenær sem er.