Sala á útflutningskindakjöti innan lands

Mánudaginn 11. febrúar 2002, kl. 15:53:44 (4357)

2002-02-11 15:53:44# 127. lþ. 74.1 fundur 329#B sala á útflutningskindakjöti innan lands# (óundirbúin fsp.), landbrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 127. lþ.

[15:53]

Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Ég held að mjög varhugavert sé fyrir mig að ræða mál sem þess vegna getur orðið dómsmál og sakamál í óundirbúinni fyrirspurn, að segja til um hvaða aðgerða kunni að koma til. Lögum ber að framfylgja. Þetta gæti auðvitað orðið dómsmál og sakamál. Mönnum ber að fara að lögum þessa lands og þannig að mun verða farið yfir það. Ég mun eiga samráð við sláturleyfishafa og Bændasamtökin um þetta mál og auðvitað verður að fylgja því eftir.