Gunnlaugur Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég held að hv. þm. Pétur H. Blöndal skilji ekki alveg til hlítar hvernig Byggðastofnun starfar. Þetta er fyrst og fremst lánastofnun sem lánar á grundvelli almennra skilmála í viðskiptalífinu. En þegar hann talar um aumingjagæsku betlistafsins, er mér spurn hvort hann eigi þar sérstaklega við sérstakan skattafslátt vegna hlutafjárkaupa, hvort hann eigi þar sérstaklega við afslátt erlendra fjárfesta í kvikmyndaiðnaði á Íslandi og hvort hv. þm. eigi þá við sérstakan lágan skatt, 10%, á fjármagnstekjur? Er þetta aumingjagæska betlistafsins í íslensku viðskiptalífi?