Fyrirspyrjandi (Kristján Pálsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir svörin, hv. þm. fyrir þátttöku í umræðunni og áhuga þeirra á starfinu sem fram fer í Byrginu.
Það vantar að sönnu peninga. Það er alltaf spurningin um hvaðan frumkvæðið að því að fá þá peninga á að koma. Þetta starf hefur þróast á síðustu árum án þess að hafa fengið þá viðurkenningu sem opinberar stofnanir hafa fyrir starfi sínu. Aðrar stofnanir hafa getað byggt upp fjölþættara og öflugra starf enda hafa opinberir aðilar greitt nánast allan kostnaðinn eða stóran hluta. Það kemur fram í rekstrarkostnaði. Vistgjöldin hjá þeim í Byrginu eru 92 þús. kr. en við þekkjum að þau skipta hundruðum þúsunda hjá stofnunum sem fá greitt frá ríkinu.
Það getur vel verið að það hamli eitthvað fjárstreymi til Byrgisins að þetta kemur í gegnum utanrrn. en ekki í félmrn., sem ætti í raun að fara alfarið með þessa stofnun. Ég vona að það leiðréttist en ég vil hins vegar upplýsa að í gegnum fjárln. hefur verið bætt við rekstrarfé Byrgisins árlega síðustu þrjú árin. Það hefur farið vaxandi þannig að hið aukna fé sem hefur komið er vegna ákvarðana sem hafa verið teknar í fjárln. Ég vísa því til föðurhúsanna þegar hv. þm. Margrét Frímannsdóttir segir að það hafi verið auðveldur leikur hjá okkur í fjárln. Hv. þm. situr sjálf í fjárln. og þekkir það mætavel.
Ég þakka þá umræðu og þau svör sem hæstv. utanrrh. hefur veitt við við spurningum mínum og vona að vandamál þeirra hjá Byrginu verði leyst sem fyrst.