Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Ég er alveg sammála þeim sem halda fram málstað öldungadeildanna. Ég tel að það hafi ekkert verið gert sem rýri í sjálfu sér stöðu þeirra innan skólakerfisins. Ef menn líta sérstaklega á fjárhagsstöðu Menntaskólans við Hamrahlíð, sem nefndur var til sögunnar en hann hefur starfað síðan 1966 og verið í fararbroddi varðandi þetta og er enn, er ekki hægt að segja annað en að hann standi fjárhagslega vel og hafi mikla burði til að bjóða góða þjónustu. Öll stjórn hans er með miklum ágætum, ekki síður en þegar fyrsti rektor hans kom til starfa. Ég veit að þar er mikill metnaður fyrir því að halda þessu starfi áfram, og full ástæða er til að taka undir með hv. þm. um nauðsyn þess að þessi kostur sé í boði.
Við megum hins vegar ekki líta fram hjá því að frá því að öldungadeildirnar komu til sögunnar árið 1966, eftir að Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður, hafa orðið miklar breytingar og ekki síst núna á síðustu missirum. Menntmrn. mun einmitt halda ráðstefnu í Menntaskólanum við Hamrahlíð 1. mars næstkomandi, UT2002, þar sem yfirskriftin er:
Dreifmenntun fyrir alla -- alls staðar. Menn geta í raun og veru stundað nám alls staðar núna. Við erum að vinna út frá nýju hugtaki, dreifnáms- og dreifmenntunarhugtakinu, sem vísar til þess að menn þurfi ekki endilega að fara í skóla til að stunda nám en tengslin við skólana eru að sjálfsögðu mjög mikilvæg og þannig mun þetta þróast áfram.