Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Hv. þm. talar um klúður. Það er nú kannski ekki alveg rétta orðið. Hins vegar skal ég viðurkenna að þessi mál eru ekki í nægilega góðum farvegi. Eins og fram kom í máli mínu snertir þetta stóran hóp fólks sem hefur mjög erfiða samningsstöðu gagnvart lánardrottnum sínum.
Það kom fram í máli mínu að við hyggjumst bæta úr og leggja fram frv. þar sem tekið verði á þessu vandamáli. Það er ekki alveg fullmótað hvernig það frv. verður nákvæmlega útfært. Hins vegar tel ég mestar líkur á að það verði svipað þeim frumvörpum sem lögð hafa verið fram áður. Ég tel að besti kosturinn sé að leysa málið þannig. En ég opnaði einnig á annan möguleika, sem gæti komið til greina ef um það skapaðist meira samkomulag, að um úrskurðarnefnd væri að ræða þar sem viðkomandi neytendur sem hefðu lent í erfiðri aðstöðu gætu komið fram kvörtunum (JóhS: Í klóm lögfræðinga.) gagnvart lánardrottnum --- í klóm lögfræðinga, kallar hv. þm. hér fram í.
Ég vil þakka fyrir þessa fyrirspurn því að hún ýtir á að úr þessu máli verði bætt sem ég hef fullan hug á að gera sem allra fyrst.