Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Það veldur mér nokkrum vonbrigðum vegna þess að ég taldi að það væri hlutverk hæstv. ráðherra, fyrst þetta er afstaða framkvæmdarvaldsins, að leggja fram grunngögnin sem við gætum notað til þess að meta þetta með þessum hætti. Ég er alfarið þeirrar skoðunar að það sé ekki hægt að taka ákvörðun um framkvæmdir sem hafa í för með sér spjöll eða röskun á náttúrunni nema maður hafi næsta góða mynd af því hvaða ávinningur hlýst af því á móti.
Gott og vel. Ef hæstv. ráðherra telur að þingnefndir eigi að fjalla um þetta, er þá hæstv. ráðherra að leggja til að um þetta mál verði fjallað í iðnn., umhvn. og efh.- og viðskn. eða að haldnir verði sameiginlegir fundir þessara nefnda um málið? Ég tel a.m.k. óhjákvæmilegt að efh.- og viðskn. fái þetta til umfjöllunar út af þessum þætti málsins.